Notkun jarðefna
Enginn aðili skráir magn allra steinefna sem framleidd eru á Íslandi. Hagstofa Íslands hefur þó tekið saman framleiðslu fyrirtækja sem eingöngu eru í steinefnavinnslu, en þeir aðilar framleiða einungis lítinn hluta af þeim steinefnum sem notuð eru í landinu. Upplýsingar um notkun jarðefna eru því byggðar á áætlun Vegagerðarinnar um notkun jarðefna á Íslandi. Vegagerðin heldur utan um notkun jarðefna í vegagerð, en upplýsingar um aðra jarðefnanotkun eru lauslegt mat. Hafa ber í huga að notkun jarðefna sveiflast mikið eftir efnahagsástandinu í landinu og hefur dregist saman á síðustu árum.
Jarðefni, bæði setlög og berg, og vinnsla þeirra eru mikilvæg í byggingariðnaði og til vegagerðar. Notkun jarðefna er mjög mikil á Íslandi og er hlutfallslega margfalt meiri jarðefnanotkun á hvern íbúa hér en á hinum Norðurlöndunum. Hins vegar er notkun bergs hlutfallslega mun meiri þar en hér. Það er meðal annars vegna þess að aðgengileg laus jarðefni hafa sums staðar gengið til þurrðar auk þess sem oft fæst betra efni við vinnslu bergs. Notkun sprengds bergs, aðallega basalts, hefur þó aukist mikið á undanförnum árum hér á landi.